Jæja gott fólk
Nú er loksins kominn vettvangur fyrir T-lista fólk að láta skoðanir sínar í ljós, eða hvað? Jú það er nú eða aldrei. Við erum jú komin í meirihluta á tvennum vígstöðvum af þremur. Við erum í meirihluta"samstarfi" hvað fjölda kvenna´sem aðalmenn í sveitarstjórn snertir og svo erum við líka í meirihluta hvað varðar fjölda sveitarstjórnarmanna sem hafa B fyrir fyrsta staf í nafni. (Hmm, enginn Pollýönnuleikur þarna á ferð.) En sem sagt, hér er kannski kominn staður fyrir okkur T-ara til að koma sjónarmiðum á framfæri, hver veit. Aðgang að síðunni hafa allir þeir sem buðu sig fram fyrir T-listann í síðustu sveitarstjórnarkonsingum. Við sem erum gjaldgeng höfum því miður týnt tölunni á einn eða annan hátt, margir flutt í burtu, sem virðist vera þróun sem D-listinn hratt af stað eftir valdatöku. Vonandi ómeðvitað samt. En þetta er sem sagt fyrsta bloggið okkar. Kannski verða þau fleiri, hver veit.
IK